Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018

Úrskurður velferðarráðuneytisins nr. 018/2018

Fimmtudaginn 5. júlí 2018 var í velferðarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

 

ú r s k u r ð u r:

Með erindi, dags. 1. nóvember 2017, kærði Med Holdings ehf., kt. 450717-0880, og […], sem er ríkisborgari Marokkó, fd.  […], ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. október 2017, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa  […] í því skyni að ráða sig til starfa hjá Med Holdings ehf.

I. Málavextir og málsástæður.

Mál þetta varðar synjun Vinnumálastofnunar á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa  […], sem er ríkisborgari Marokkó, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Med Holdings ehf. Vinnumálastofnun synjaði um veitingu atvinnuleyfisins með vísan til 9. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum.

Þeirri ákvörðun vildu kærendur ekki una og kærðu hana til ráðuneytisins með tölvubréfi, dags. 1. nóvember 2017. Í erindi kærenda kemur fram að bróðir viðkomandi útlendings og eiginkona hans búi hér á landi og veiti henni fjárhagslegan stuðning. Vilji viðkomandi útlendings standi til þess að öðlast fjárhagslegt sjálfstæði og lífsfyllingu með því að sinna starfi hérlendis. Þá kemur fram í erindinu að allir fjölskyldumeðlimir viðkomandi útlendings séu búsettir á Íslandi.

Með tölvubréfi, dags. 1. nóvember 2017, óskaði ráðuneytið eftir afriti af ákvörðun Vinnumálastofnunar og barst ráðuneytinu fyrrgreind ákvörðun með tölvubréfi sama dag.

Ráðuneytið sendi hlutaðeigandi atvinnurekanda bréf, dags. 6. nóvember 2017, þar sem bent var á að samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, skulu hlutaðeigandi atvinnurekandi og umræddur útlendingur báðir undirrita stjórnsýslukæru til ráðuneytisins vegna ákvarðana Vinnumálastofnunar um synjun eða afturköllun tímabundins atvinnuleyfis hér á landi. Þeir geti þó veitt öðrum umboð sitt til að fara með málið fyrir sína hönd, sbr. sama ákvæði. Jafnframt var óskað eftir staðfestingu þess efnis að hlutaðeigandi atvinnurekandi ætlaði að standa að umræddu erindi til ráðuneytisins eða gögnum sem sýndu fram á að umrætt félag hafi veitt öðrum umboð til þess að fara með málið fyrir sína hönd. Frestur til að veita ráðuneytinu umbeðnar upplýsingar var veittur til 20. nóvember 2017. Umbeðin gögn bárust ráðuneytinu með bréfi, dags. 7. nóvember sama ár.

Erindi kærenda var sent Vinnumálastofnun til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags. 13. nóvember 2017, og var frestur veittur til 28. nóvember sama ár. Í umsögn Vinnumálastofnunar sem barst ráðuneytinu 5. desember 2017 kemur fram að umrædd umsókn um tímabundið atvinnuleyfi hafi borist Útlendingastofnun til afgreiðslu 22. september 2017 og Vinnumálastofnun 9. október sama ár. Í umsóknargögnum hafi komið fram að ráða hafi átt viðkomandi útlending til starfa við sérstakt ræstingarverkefni en starfsgrein hlutaðeigandi atvinnurekanda samkvæmt hlutafélagaskrá sé almenn þrif bygginga. Jafnframt hafi komið fram í gögnunum að ástæða ráðningar viðkomandi útlendings væri sérstök hæfni hennar við ræstingar.

Fram kemur í umsögn Vinnumálastofnunar að með bréfi, dags. 11. október 2017, hafi hlutaðeigandi atvinnurekanda verið tilkynnt um það mat stofnunarinnar að unnt væri að manna umrætt starf með starfsmanni sem þegar hefði ótakmarkaðan rétt til þess að ráða sig til starfa hér á landi. Í því sambandi hafi verið vakin athygli á því að Vinnumálastofnun hafi auglýst um þrjátíu sambærileg störf á höfuðborgarsvæðinu á árinu. Almennt hafi gengið vel að ráða starfsfólk til þess að sinna störfunum sem þegar hafi ótakmarkaðan rétt til þess að starfa hér á landi. Með fyrrgreindu bréfi hafi hlutaðeigandi atvinnurekanda jafnframt verið veitt færi á að koma á framfæri rökstuðningi fyrir því af hverju stofnunin ætti þrátt fyrir framangreint mat að veita umbeðið leyfi. Vinnumálastofnun hafi borist tölvubréf frá fulltrúa hlutaðeigandi atvinnurekanda, dags. 12. október 2017, þar sem fram hafi komið að hann hafi átt langt viðtal við viðkomandi útlending. Niðurstaða viðtalsins hafi verið sú að viðkomandi útlendingur hefði góða reynslu og þekkingu á sótthreinsun og talaði sama tungumál og framkvæmdastjóri hlutaðeigandi atvinnurekanda sem væri nauðsynlegt vegna sérstakra og mikilla samskipta innan fyrirtækisins. Þá hafi verið tekið fram í bréfinu að viðkomandi útlendingur skipti miklu máli fyrir hlutaðeigandi atvinnurekanda.

Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur fram að samkvæmt 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, sé heimilt að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna tiltekins starfs hér á landi þegar starfsfólk fæst hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins, í EFTA-ríkjum eða Færeyjum. Skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis á grundvelli ákvæðisins séu meðal annars að skilyrði 1. mgr. 7. gr. laganna séu uppfyllt. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. laganna sé það skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis að starfsfólk fáist hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins, EFTA-ríkja eða Færeyja eða aðrar sérstakar ástæður mæli með leyfisveitingu. Þá sé tekið fram að áður en atvinnuleyfi sé veitt beri atvinnurekanda að hafa leitað eftir starfsfólki með aðstoð Vinnumálastofnunar nema slík leit verði fyrirsjáanlega árangurslaus að mati stofnunarinnar. Er í því sambandi vísað til athugsemda við frumvarp það er varð að lögum nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga og lögum nr. 105/2014, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum. Samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, falli það í hlut Vinnumálastofnunar að meta hvort umsögn um útgáfu tímabundins atvinnuleyfis uppfylli skilyrði a-liðar 1. mgr. 7. gr. laganna.

Með hliðsjón af reynslu Vinnumálastofnunar á að ráða í störf við ræstingar á árinu 2017, aðstæðna á sameiginlegum vinnumarkaði Evrópska efnahagssvæðisins en þar mældist atvinnuleysi 7,4% í október 2017 og skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 105/2014, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, sé það mat stofnunarinnar að unnt hefði verið að manna umrætt starf með einstaklingi sem þegar hefði ótakmarkaða heimild til að ráða sig til starfa hér á landi.

Með bréfi ráðuneytisins, dags. 20. desember 2017, var hlutaðeigandi atvinnurekanda gefinn kostur á að koma á framfæri við ráðuneytið athugasemdum sínum við umsögn Vinnumálastofnunar. Jafnframt óskaði ráðuneytið eftir gögnum eða upplýsingum frá hlutaðeigandi atvinnurekanda sem sýndu fram á raunverulegan rekstur fyrirtækisins, s.s. samninga við viðskiptamenn og upplýsingar um fjölda starfsmanna. Frestur til að veita ráðuneytinu umbeðnar upplýsingar var veittur til 9. janúar 2018. Umbeðnar upplýsingar bárust ekki fyrir lok frests.

Með bréfi ráðuneytisins, dags. 20. desember 2017, var viðkomandi útlendingi gefinn kostur á að koma á framfæri við ráðuneytið athugasemdum við umsögn Vinnumálastofnunar. Frestur til að veita ráðuneytinu  athugasemdir var veittur til 9. janúar 2018. Umbeðnar upplýsingar bárust ekki fyrir lok frests.

Með bréfum ráðuneytisins til viðkomandi útlendings og hlutaðeigandi atvinnurekanda, dags. 12. janúar 2018, voru framangreindar beiðnir ráðuneytisins um athugasemdir við umsögn Vinnumálastofnunar og frekari upplýsingar frá hlutaðeigandi atvinnurekanda ítrekaðar. Lokafrestur til að veita ráðuneytinu umbeðnar upplýsingar var veittur til 22. janúar 2018 og var tekið fram í bréfunum að hafi athugasemdir ekki borist fyrir þann tíma myndi ráðuneytið taka málið til efnislegrar meðferðar á grundvelli þeirra gagna sem þegar lægju fyrir í málinu. Umbeðnar upplýsingar frá kærendum bárust ekki fyrir lok frestsins.

Þar sem bréf ráðuneytisins til viðkomandi útlendings, dags. 12. janúar 2018, var endursent til ráðuneytisins var fyrrgreint bréf sent sem viðhengi með tölvubréfi, dags. 22. janúar sama ár. Frestur til að veita ráðuneytinu athugasemdir við umsögn Vinnumálastofnunar var veittur til 29. janúar 2018.

Með tölvubréfi forsvarsmanns viðkomandi útlendings til ráðuneytisins, dags. 24. janúar 2018, kemur fram að hann hafi fengið misvísandi upplýsingar frá Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun um hvort viðkomandi útlendingur skuli vera staðsettur á landinu eða utan þess á meðan umsókn hennar um tímabundið atvinnuleyfi er til meðferðar hjá stofnuninni. Þannig hafi skort á upplýsingagjöf fyrrgreindra stofnana.

II. Niðurstaða.

Samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, er heimilt að kæra ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun eða afturköllun tímabundinna atvinnuleyfa til velferðarráðuneytis. Í máli þessu er kærð ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. apríl 2017, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna skorts á starfsfólki, sbr. 9. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum.

Atvinnuleyfi vegna starfa útlendinga á innlendum vinnumarkaði eru veitt í samræmi við lög um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, reglugerðir sem settar eru með heimild í þeim lögum og stefnu íslenskra stjórnvalda hverju sinni að teknu tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga þeirra.

Samkvæmt 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, er heimilt að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna tiltekins starfs hér á landi þegar starfsfólk fæst hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins, í EFTA-ríkjum eða í Færeyjum. Skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis samkvæmt ákvæðinu eru meðal annars að skilyrði 1. mgr. 7. gr. laganna séu uppfyllt. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. laganna er það skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að starfsfólk fáist hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins, EFTA-ríkja eða Færeyja eða aðrar sérstakar ástæður mæli með veitingu atvinnuleyfis. Þá er tekið fram að áður en atvinnuleyfi er veitt beri atvinnurekanda að hafa leitað eftir starfsfólki með aðstoð Vinnumálastofnunar nema slík leit verði fyrirsjáanlega árangurslaus að mati stofnunarinnar.

Í athugasemdum við 7. gr. a frumvarps þess er varð að gildandi 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. lög nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og lögum nr. 47/1997, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, kemur fram að ákvæðið fjalli um tímabundið atvinnuleyfi sem ætlað er að mæta tímabundnum sveiflum í íslensku atvinnulífi. Gert sé „ráð fyrir að einungis reyni á ákvæði þetta við sérstakar aðstæður enda mikil áhersla lögð á að atvinnurekendur leiti fyrst eftir starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins. Áfram er því gert ráð fyrir því að atvinnurekandi þurfi að færa sérstök rök fyrir nauðsyn þess að ráða til sín erlent starfsfólk frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins enda verði höfð hliðsjón af aðstæðum á innlendum vinnumarkaði við veitingu atvinnuleyfa sem og hvort vinnuafl fáist frá aðildarríkjum að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, EFTA-ríkjum eða Færeyjum. Er gert ráð fyrir að ríkar kröfur verði gerðar til atvinnurekenda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð Vinnumálastofnunar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði en mat á þörf eftir vinnuafli verður áfram á ábyrgð Vinnumálastofnunar.“ Er jafnframt vísað til athugasemda við 5. gr. frumvarpsins er varð að gildandi 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum. Þar er tekið fram að atvinnurekandi verði að gera grein fyrir þeim tilraunum sem hann hafi gert til að ráða fólk sem þegar hafi aðgengi að innlendum vinnumarkaði auk þess sem áhersla er lögð á að atvinnurekendur leiti fyrst eftir starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins með aðstoð Vinnumálastofnunar með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, áður en leitað er út fyrir svæðið eftir starfsfólki. Þá segir að það falli „í hlut Vinnumálastofnunar að kanna sjálfstætt áður en atvinnuleyfi er veitt hvert atvinnuástandið innan lands er á hverjum tíma og hvort útséð er um að vinnuafl fáist innan Evrópska efnahagssvæðisins, frá EFTA-ríkjum eða Færeyjum, sbr. a-lið 1. mgr. ákvæðis þessa, enda hlutverk stofnunarinnar að fylgjast með atvinnuástandi í landinu í því skyni að koma í veg fyrir atvinnuleysi eins og frekast er unnt.“

Af efni ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, má því ráða að mat Vinnumálastofnunar á því hvort skilyrði ákvæðisins fyrir veitingu tímabundinna atvinnuleyfa séu uppfyllt skuli aðallega byggjast á aðstæðum á innlendum vinnumarkaði hverju sinni sem og hvort starfsfólk fáist innan Evrópska efnahagssvæðisins, EFTA-ríkja eða Færeyja. Þar á meðal er átt við hið lögbundna hlutverk Vinnumálastofnunar að meta hvort leit atvinnurekanda að starfsmanni, sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði, sé fyrirsjáanlega árangurslaus og þar með ekki nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis. Beiðni um aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði er því lögbundið skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis enda telji stofnunin leitina ekki fyrirsjáanlega árangurslausa.

Við mat á því hvort skilyrðum a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, sé fullnægt ber Vinnumálastofnun jafnframt að líta til skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig 2. gr. sömu laga. Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið hafa íslensk stjórnvöld skuldbundið sig til að skapa skilyrði fyrir fulla atvinnu, bætt lífskjör og bætt starfsskilyrði á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. einnig lög nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum. Ákvæði 28.-30. gr. samnings um Evrópska efnahagssvæðið fjalla síðan sérstaklega um frjálsa för launafólks sem nánar eru útfærð í gerðum um þetta efni og hafa verið felldar undir V. viðauka við samninginn. Samkvæmt reglugerð nr. 492/2011/ESB, um frjálsa för launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem tekið hefur gildi hér á landi, sbr. lög nr. 105/2014, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins skal sérhver ríkisborgari annars aðildarríkis njóta þeirra réttinda að ráða sig til starfa á yfirráðasvæði annars aðildarríkis með sama forgangsrétti og ríkisborgarar þess ríkis. Er þar jafnframt kveðið á um náið samstarf vinnumiðlana aðildarríkjanna um miðlun lausra starfa innan svæðisins. Það telst því felast í skuldbindingum íslenskra stjórnvalda samkvæmt framangreindum samningi að þau veiti launamönnum sem eru ríkisborgarar annarra aðildarríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins sama aðgang og íslenskir ríkisborgarar hafa að lausum störfum á innlendum vinnumarkaði og þar með forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að þeim störfum.

Það er því jafnframt lögbundið skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna skorts á starfsfólki á grundvelli 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, að atvinnurekandi hafi áður leitað aðstoðar Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, eftir að leit hans innanlands hefur ekki skilað árangri. Jafnframt eru gerðar ríkar kröfur til atvinnurekenda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð Vinnumálastofnunar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Í máli þessu taldi Vinnumálastofnun meginreglu ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, eiga við. Með hliðsjón af reynslu Vinnumálastofnunar af að ráða í störf við ræstingar á árinu 2017, aðstæðna á sameiginlegum vinnumarkaði Evrópska efnahagssvæðisins en þar mældist atvinnuleysi 7,4% í október 2017 og skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 105/2014 um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, var það mat stofnunarinnar að unnt væri að manna umrætt starf með einstaklingi sem hefði þegar ótakmarkaða heimild til að ráða sig til starfa hér á landi. Því hefur ekki verið mótmælt af hálfu kærenda.

Verður ekki annað séð en að mat Vinnumálastofnunar þess efnis að hlutaðeigandi atvinnurekanda hafi borið að óska eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsmanni á innlendum vinnumarkaði hafi byggst á málefnalegum sjónarmiðum. Ráðuneytið gerir ekki athugasemdir við að Vinnumálastofnun hafi við matið  vísað til reynslu stofnunarinnar af að ráða í sambærileg störf á árinu. Á það ekki síst við í ljósi þess að ekki verður annað ráðið af gögnum málsins en að um hefðbundið starf við ræstingar sé að ræða og að í október 2017 var skráð atvinnuleysi hér á landi 1,9%, sbr. skýrslu stofnunarinnar yfir stöðu á vinnumarkaði vegna október 2017, og á sama tíma mældist atvinnuleysi á Evrópska efnahagssvæðinu 7,4%. Við framkvæmd laga um atvinnuréttindi útlendinga hefur verið lögð áhersla á mikilvægi þess að viðhaldið sé jafnvægi milli framboðs á vinnuafli og eftirspurnar eftir því á innlendum vinnumarkaði. Er því jafnframt þýðingarmikið að horfa til þeirra langtímaáhrifa sem útgáfa tímabundinna atvinnuleyfa getur haft á jafnvægi á vinnumarkaði.

Það er því mat ráðuneytisins að í ljósi aðstæðna hafi ekki verið fullreynt að ráða í starfið einstakling sem þegar hafði aðgengi að innlendum vinnumarkaði. Verður ekki litið til hugsanlegrar reynslu viðkomandi útlendings enda um ósérhæft starf við ræstingar að ræða. Það verður að teljast málefnalegt að gera þá kröfu að hlutaðeigandi atvinnurekandi ráði starfsmann til að sinna starfinu sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði enda þótt hann þurfi að þjálfa starfsmanninn til að sinna starfinu.

Fram kemur í gögnum málsins að viðkomandi útlendingur talaði sama tungumál og framkvæmdastjóri hlutaðeigandi atvinnurekanda sem væri nauðsynlegt vegna sérstakra og mikilla samskipta innan fyrirtækisins. Ráðuneytið dregur ekki í efa að það geti komið sér vel og sé til hægðarauka að umræddur starfsmaður og framkvæmdastjóri hlutaðeigandi atvinnurekanda tali sama tungumál. Hins vegar er það mat ráðuneytisins að það verði ekki talið þýðingarmikið fyrir rekstur hlutaðeigandi atvinnurekanda að umræddum útlendingi verði veitt tímabundið atvinnuleyfi hér á landi til að gegna því starfi sem hér um ræðir á grundvelli tungumálakunnáttu sinnar enda megi ætla að til að gegna slíkum störfum séu alla jafna ráðnir ófaglærðir atvinnuleitendur þar sem störf við ræstingar krefjist almennt ekki tiltekinnar sérfræðikunnáttu. Verður því ekki talið að sérstakar ástæður í skilningi a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, séu fyrir hendi í máli þessu sem mæli með veitingu tímabundins atvinnuleyfis. 

Fram kemur í gögnum málsins að bróðir viðkomandi útlendings og eiginkona hans búi hér á landi og veiti henni fjárhagslegan stuðning. Samkvæmt ákvæði a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, geta aðrar sérstakar ástæður mælt með leyfisveitingu. Í athugasemdum við 5. gr. frumvarps þess er varð að gildandi 7. gr. laganna, sbr. lög nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga og lögum nr. 47/2008, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, er tekið fram að gert sé ráð fyrir að „Vinnumálastofnun verði áfram heimilt að líta til sérstakra ástæðna fyrir ráðningu útlendings við veitingu atvinnuleyfa en þá er við það miðað að þýðingarmikið sé fyrir rekstur atvinnurekanda að fá hlutaðeigandi útlending til starfa tímabundið. Með þessu er ekki átt við ástæður sem lúta að útlendingnum sjálfum eða aðstæðum hans.“ Ráðuneytið skortir því heimild að lögum til að fjalla efnislega um þau atriði er lúta að persónulegum aðstæðum viðkomandi útlendings sem fjallað er um í gögnum málsins sem og til að taka afstöðu til þeirra í niðurstöðu sinni í máli þessu. Enn fremur lítur ráðuneytið almennt svo á að aðstæður viðkomandi útlendings teljist ekki til málefnalegra sjónarmiða sem réttlæta að atvinnurekendur geti haft sérstakan hag af því að ráða tiltekinn útlending til starfa.

Ástæða þykir þó til að nefna að samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga er heimilt að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna starfa nánustu aðstandenda íslensks ríkisborgara eða útlendings sem hefur tímabundið atvinnuleyfi skv. 8. gr. laganna, tímabundið atvinnuleyfi sem tengist dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eða dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið skv. 11. gr. laganna, tímabundið dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar samkvæmt lögum um útlendinga eða ótímabundið dvalarleyfi samkvæmt lögum um útlendinga að uppfylltum skilyrðum 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, sbr. 1. mgr. 12. gr. laganna. Eitt af skilyrðum fyrir veitingu tímabundinna atvinnuleyfa á grundvelli fjölskyldusameiningar er jafnframt að áður hafi verið gefið út dvalarleyfi samkvæmt lögum um útlendinga. Fellur það í hlut Útlendingastofnunar að meta hvort skilyrði laga um útlendinga eru uppfyllt þannig að heimilt sé að veita dvalarleyfi áður en atvinnuleyfi er veitt á þeim grundvelli. Þar sem viðkomandi útlendingi hefur ekki verið veitt dvalarleyfi í tengslum við fjölskyldusameiningu hér á landi kemur, þegar af þeirri ástæðu, ekki til álita að fjalla í máli þessu um hvort heimilt sé að veita umræddum útlendingi atvinnuleyfi á grundvelli 12. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga.

Þegar litið er til aðstæðna á innlendum vinnumarkaði, skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningi um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig lög nr. 105/2014, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, reynslu Vinnumálastofnunar af ráðningum í sambærileg störf á árinu, eðli starfsins, sem og gagna málsins í heild, er það mat ráðuneytisins að í máli þessu hafi hvorki verið sýnt fram á að fullreynt hafi verið að ráða einstakling í starfið af innlendum vinnumarkaði né af sameiginlegum vinnumarkaði Evrópska efnahagssvæðisins sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða ráðuneytisins að skilyrði 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, um veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna skorts á vinnuafli, séu ekki uppfyllt í máli þessu.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. október 2017, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […], sem er ríkisborgari Marokkó, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Med Holdings ehf., skal standa.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum